Beint flug frá Akureyri til Ljubljana
Spennandi ferðapakkar í Slóveníu, Króatíu og Ungverjalandi ásamt hjólaferð um Istriaskaga!
Sjöunda árið í röð bjóðum við hjá Nonna Travel upp á beint flug til Ljubljana, en flogið er með Airbus flugvél slóvenska flugfélagsins Adria Airways og tekur vélin 144 farþega, flugið u.þ.b 4 klst. hvora leið.
Ferðatímabilið er 22. – 29. ágúst 2017
Viltu hjóla, fara í vínsmökkun, skoða ótrúlega fallegar borgir eða bara njóta lífsins á ströndinni?
Boðið er upp á nýja áfangastaði – smellið á tengla hér fyrir neðan til að lesa nánar um ferðapakkanna:
Flugáætlun
22. ágúst flug JP 943 Akureyri-Ljubljana 09:00 14:55
29. ágúst flug JP 942 Ljubljana-Akureyri 16:05 18:20
Upplýsingar um pakkaferðir hér fyrir neðan:
1. Ferð SB-1: PERLA ADRÍAHAFSINS: ZADAR Í KRÓATÍU
Dvalið verður við strönd Adríahafsins í Zadar, en borgin hlaut verðlaunin “European Best Destination 2016”!
Fararstjóri: Jón Kristleifsson
Nánari ferðalýsing og verð hér.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir og bókanir á netfang: asdis@nonnitravel.is
2. Ferð SB-2: FEGURÐ ALPANA OG ADRÍAHAFSINS
Helstu perlum slóvensku Alpana og Króatíu gerð góð skil: stutt dvöl í höfuðborginni Ljubljana; farið til Bled og Bohinj í slóvensku Ölpunum; dvöl í strandabænum Opatija; Plitvice þjóðgarður sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Fararstjóri: Jónas Helgason
Nánari ferðalýsing og verð hér.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir og bókanir á netfang: asdis@nonnitravel.is
Keyrt til Ungverjalands – byrjað er á ferðamannastaðnum Héviz. Dvalið í Budapest mestmegnis. Meðal annars verður eina bjarnabóndabýli í mið-Evrópu heimsótt; farið í vínsmökkun og siglt á Balaton vatn.
Fararstjóri: Sandor Matus
Nánari ferðalýsing og verð hér.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir og bókanir á netfang: asdis@nonnitravel.is
5. Ferð SB-3: HJÓLAÐ Á ISTRIASKAGA
Hjólað um Istriaskaga í Króatíu. Dagleiðir liggja meðfram vínekrum, ströndum, í gengum þorp og bæi, þar sem forn menning hefur skilið eftir spor sín.
Nánari ferðalýsing og verð hér.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir og bókanir á netfang: asdis@nonnitravel.is