Ferð til Kína með Nonna Travel
Vegna kórónaveiru faraldurs hefur verið ákveðið að fresta ferðinni fram til haust 2021 eða vors 2022. Nánari upplýsingar koma síðar.
Ferðaskrifstofan Nonni Travel mun bjóða upp á einstaka ferð 21 daga draumaferð til Kína, þar sem heimsóttar verða stórborgirnar Beijing og Shanghai, hin forna höfuðborg Xian og náttúruperlurnar Guilin og Yangshuo.
Kína er fjölmennasta land heims, gríðarstórt og er þar að finna gífurlega fjölbreytta menningu, matarlist, einhverjar nútímalegustu borgir heims og stórbrotna náttúru. Kína státar af rúmlega 5.000 ára langri sögu og þar af 3.500 ára langri ritaðri sögu.
Fararstjóri í ferðinni verður kínverskufræðingurinn og sölustjóri Nonna Travel, Arnar Steinn Þorsteinsson, sem bjó í Kína til margra ára, talar kínversku og hefur mikla reynslu af ferðalögum í Kína og kínverskri menningu.
Í ferðinni er lögð áhersla á þægindi og afslappaða ferðatilhögun, m.a. með því að ferðast milli ákveðinna áfangastaða með háhraðalestum, þar sem gefst tími til slökunar og að njóta útsýnisins á leiðinni. Þá var kappkostað að hafa allan aðgangseyri innifalinn og lögð áhersla á að kynna vel sögu og menningu Kína, til að gefa upplifuninni meiri dýpt.
Morgunmatur er ávallt innifalinn og oft annað hvort hádegisverður eða kvöldverður og því næg tækifæri til að rannsaka kínverska matarmenningu á eigin vegum eða finna sér vestræna veitingastaði eins og best hentar hverjum og einum.
Lágmarksfjöldi í ferðina eru 24 farþegar og hámark 34.
Verð á mann í tvíbýli: 505.400 kr.
Verð í einbýli: 633.900 kr.
Bóka draumaferðina til Kína
Hvað ber hæst?
Í Beijing:
Í Xian:
Í Guilin og Yangshuo:
Í Shanghai:
Ferðatilhögun
Dagur 1 – 6: Flogið til Beijing
Flogið verður með Finnair, fyrst frá Keflavík til Helsinki og þaðan áfram til Beijing.
Flugtímar: frá Keflavík kl. 09:25 og lent í Helsinki kl. 15:50 að staðartíma. Flugtak frá Helsinki kl. 18:20 og lent kl. 06:55 að staðartíma í Beijing.
Dagur 2 – 7: Komið til Beijing
Við komuna til Beijing verður farþegum ekið á hótelið þar sem hópurinn getur fengið að geyma farangurinn sinn. Þar sem ekki verður hægt að fá herbergin afhent um leið (nema gegn aukagjaldi), þá munum við fara í leiðangur og kanna eina helstu verslunargötu Beijing, Wangfujing, þar sem við getum orðið okkur út um hressingu og fengið okkar fyrstu upplifun af morgunstemmningu í Kína.
Herbergi afhent kl.14
Síðdegi til að hvíla sig og jafna sig á flugþreytu.
Kvöldmatur á eigin vegum.
Hótel: Novotel Beijing Peace Hotel 4*
Dagur 3 – 8: Torg hins Himneska Friðar – Forboðna Borgin – Himnahofið
Eftir morgunmat liggur leiðin á Torg hins Himneska Friðar sem er eitt stærsta borgartorg heims. Torgið er staðsett fyrir framan innganginn að Forboðnu Borginni sem við heimsækjum næst. Hallirnar voru reistar á 15. öld og þar bjuggu keisarar Kínaveldis allt fram til ársins 1911 þegar síðasti keisari Kína var borinn út og síðasta keisaraveldið leið undir lok.
Eftir sameiginlegan hádegisverð (innifalið) munum við heimsækja Himnahofið sem er stærsta trúarlega bygging Kína, en þangað komu kínversku keisararnir á tímum Ming og Qin keisaraveldanna til að biðja til himins á öldum áður.
Að lokum förum við með hjólavögnum (e. rickshaw) inn í hutong hverfi Beijing borgar. Hutong er nafn á hefðbundinni byggingarlist sem tíðkaðist í norður Kína og einkenndi Beijing borg á árum áður. Nú eru þessi hverfi því sem næst horfin í kjölfar nútímavæðingar borgarinnar en okkur gefst kostur á að sjá þau og upplifa.
Kvöldmatur á eigin vegum.
Hótel: Novotel Beijing Peace Hotel 4*
Dagur 4 – 9: Kínamúrinn
Í dag förum við að Kínamúrnum, nánar tiltekið við Mutianyu. Kínamúrinn þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni, enda talið eitt af undrum veraldar. Við förum upp á múrinn með kláfi og skoðum okkur um og förum svo niður frá múrnum á nokkurs konar hjólasleðum!
Hádegisverður á eigin vegum.
Á leiðinni tilbaka munum við aka framhjá þjóðaríþróttaleikvangi Kína sem var byggður fyrir Ólympíuleikana sem haldnir voru í landinu 2008 en leikvangurinn er kallaður „Hreiðrið“ og þykir mikið hönnunar og byggingarafrek.
Sameiginlegur kvöldverður (innifalið).
Hótel: Novotel Beijing Peace Hotel 4*
Dagur 5 – 10: Sumarhöllin – Xian
Um morguninn munum við skoða Sumarhöllina sem áður gengdi hlutverki keisaragarðs á tímum Qing keisaraveldisins. Þar er að finna mikið af fallegum byggingum og vötnum og þykir einn fegursti staður Beijing borgar.
Eftir hádegisverð munum við fara á lestarstöðina og taka háhraðalest til hinnar fornu höfuðborgar Xian (um 4,5 tími í lest). Kvöldverður um borð í lestinni.
Við komuna á lestarstöðina verður hópnum ekið upp á hótelið.
Xian er ein elsta borg Kína, upphaf hinnar fornu silkileiðar og var höfuðborg margra fornra keisaravelda. Í dag búa þar um 12 milljónir manna og skipar borgin mikilvægan sess sem miðstöð menningar, menntunar og iðnaðs í mið-norðvestur hluta Kína.
Hótel: Shangri-la Xian 5*
Dagur 6 – 11: Terracotta leirherinn – Hof hinnar Stóru Villigæsar (Big Wild Goose Pagoda)
Eftir morgunmat munum við skoða hinn heimsfræga Terracotta leirher. Hér má sjá hermenn, hesta og vagna í raunstærð, hver stytta fullkomlega einstök. Um er að ræða einhvern merkasta fornleifafund allra tíma í Kína, um 8.000 hermenn, 130 hestvagnar og um 700 hestar sem tilheyrðu her fyrsta keisara Kína, Qin Shihuang og er talið að þeir hafi átt að verja gröf keisarans eftir dauða hans. Hins vegar hefur gröf keisarans enn ekki fundist!
Eftir hádegismat (innifalið) heimsækjum við frægasta búddahof Xian, Hof hinnar Stóru Villigæsar. Pagóðan var upprunalega reist árið 652 og var þá rúmlega 60 metra há.
Kvöldmatur á eigin vegum.
Hótel: Shangri-la Xian 5*
Dagur 7 – 12: Xian – Guilin
Við fræðumst meira um hina merku sögu Kína á Shaanxi safninu fyrir hádegi og eftir hádegismat förum við á flugvöllinn og tökum flug til borgarinnar Guilin í Guanxi héraði.
Frjáls tími eftir að komið verður á hótelið.
Guilin er þekktust fyrir einstakt og stórbrotið landslag þar sem fagurmótaða kalksteinshóla ber víða við himin.
Hótel: Guilin Bravo Hotel 4*
Dagur 8 – 13 „Fílsranahóll“ – Sjö Stjörnu garðurinn – Reyrflautuhellirinn
Við hefjum daginn á því að skoða „fílsranahól“, en það er klettur sem er í laginu eins og fíll sem er að fá sér vatnssopa úr ánni sem rennur við hólinn.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Sjö Stjörnu garðinn, en hann er nefndur svo vegna sjö tinda í garðinum sem saman mynda stjörnumerkið Stóra Björn. Garðurinn er mikil náttúruperla með fjallstindum, vötnum og lækjum sem og menningarminjum.
Þá munum við einnig skoða Reyrflautuhellinn, sem er einn þekktasti hellir í Kína, þar sem við blasir undraheimur dropasteina, en hellirinn er að stærstum hluta upplýstur.
Sameiginlegur kvöldverður (innifalið).
Hótel: Guilin Bravo Hotel 4*
Dagur 9 – 14: Guilin – Yangshuo
Að loknum morgunverði förum við í 4 tíma siglingu niður Li ána í átt að bænum Yangshuo. Snæddur verður hádegisverður um borð í bátnum (innifalið).
Við komuna til Yangshuo verður fyrst farið upp á hótel og svo tekur við skoðunarferð í „Garð Ferskjublómanna“ eða Shangi-la garðinn, sem er undurfallegur með tjörnum, hellum og ferskjutrjám, en garðurinn dregur nafn sitt af þeim.
Eftir kvöldmat munum við sjá einstaka stórsýningu við Lijiang fljótið sem ber heitið „Impression Liu Sanjie“, en sýningunni er leikstýrt af einum frægasta leikstjóra kínverja, Zhang Yimou, sem er þekktastur á Vesturlöndum fyrir kvikmynd sína „Hidden Dragon, Crouching Tiger“.
Hótel: Yangshuo Green Lotus Hotel 5*
Dagur 10 – 15: Yangshuo – Guilin
Frjáls tími um morguninn til að rölta um „Vesturgötu“ og njóta útsýnisins.
Hittumst svo aftur um hádegisbil og förum á matreiðslunámskeið og snæðum saman afraksturinn.
Eftir hádegi er svo ekið til baka til Guilin og við tékkum okkur inn á hótelið okkar þar sem við dveljum næstu 2 nætur
Frjáls tími og kvöldverður á eigin vegum.
Hótel: Grand Bravo Guilin 5*
Dagur 11 – 16: Sveitaferð – Longji stalla-akrarnir
Í dag bregðum við okkur í sveitina og heimsækjum tvö þorp, Huangluo þorpið þar sem fólk af Yao minnihlutahópnum býr og er hvað þekktast fyrir einstaklega hárprúðar konur og svo Pingan þorpið þar sem við munum skoða hina ótrúlegu Longji stalla-akra.
Komið aftur til Guilin síðdegis og við tekur frjáls tími.
Hótel: Grand Bravo Guilin 5*
Dagur 12 – 17: Guilin – Shanghai
Frjáls tími um morguninn til að rölta um stræti Guilin áður en farið verður á Guilin Liangjiang flugvöllinn.
Flogið til Shanghai og ekið beint til síðasta næturstaðar þessarar ferðar. Frjáls tími um kvöldið (komið á hótelið milli 20:00 og 21:00.
Shanghai hefur oft verið kölluð Perla Austursins og er í dag ein stærsta og nútímalegasta borg heims með um 24 milljón íbúa. Shanghai er að mörgu leyti táknmynd fyrir hinn ótrúlega efnahagsvöxt Kína síðustu ár og áratugi og er sjón sögu ríkari.
Hótel: Holiday Inn Shanghai Vista 4*
Dagur 13 – 18: Skoðunarferðir um Shanghai
Eftir morgunmat munum við skoða Yuyuan garðinn í gamla miðbæ Shanghai. Um er að ræða klassískan kínverskan einkagarð með sterkum einkennum Suzhou-skólans í arkitektúr. Garðurinn var byggður í tíð Ming keisaraveldisins (1368 – 1644) og er sannkallaður lystigarður með tjörnum, skálum, lækjum, trjám og blómum og er hreinasta unun að ganga þar um í friðsælu umhverfinu.
Eftir hádegisverð (innifalið) liggur leiðin í Tianzifang hverfið sem tilheyrir hinu svokallaða franska hverfi Shanghai. Þetta hverfi og byggingar þess gengu í endurnýjun lífdaga seint á 20. öldinni og í dag má þar finna fjöldan allan af kaffihúsum, galleríum, börum, hönnunarhúsum og frumlegum verslunum. Einkenni hverfisins eru hin svokölluðu „Shikumen“ hús (Stein-vöruhúsahlið-hús) sem almennt eru talin vera einkennandi fyrir húsagerðarlist í Shanghai á 19. öld, en þau sameina arkitektúr frá suður Kína og Vesturlöndum.
Við njótum lífsins fram eftir degi í franska hlutanum og höfum frjálsar hendur um kvöldið.
Hótel: Holiday Inn Shanghai Vista 4*
Dagur 14 – 19: Tongli
Í dag munum við heimsækja vatnabærinn Tongli, sem á sér rúmlega þúsund ára sögu. Þar eru sögulegar byggingar vel varðveittar og sagan svífur yfir vötnum. Í gegnum aldirnar var Tongli vinsæll dvalarstaður skálda og listmálara sem og embættis- og fræðimanna.
Tongli byggðist upp á 7 eyjum sem tengdar eru saman með 49 steinbrúum af ýmsum ólíkum gerðum og frá ólíkum tímabilum. Elst þeirra er Siben brúin sem byggð var í tíð Song keisaraveldisins (960 – 1279). Bærinn er sannkallað minjasafn forns arkitektúrs því þar má finna þó nokkrar byggingar og hof frá Ming og Qing keisaraveldunum (1368-1911).
Við munum sigla í rólegheitum á viðarbátum um síkin og fræðast um brýrnar og byggingarnar ásamt því að rölta um bæinn þar sem færi gefst á að bragða alls konar hefðbundið kínverskt snarl og mat.
Komið aftur til Shanghai síðdegis.
Sameiginlegur kvöldverður (innifalið).
Hótel: Holiday Inn Shanghai Vista 4*
Dagur 15 –20: Shanghai
Á þessum síðasta degi okkar í Kína fáum við alfarið frjálsar hendur og fætur til að kanna Shanghai upp á eigin spýtur og gera það sem hugurinn girnist.
Farþegar munu að sjálfsögðu fá fjölmargar uppástungur og upplýsingar, enda af nógu að taka í Perlu Austursins.
Hótel: Holiday Inn Shanghai Vista 4*
Dagur 16 –21: Shanghai
Eftir morgunverð verður okkur ekið á flugvöllinn.
Brottför frá Shanghai með Finnair kl. 09:20 og komið til Helsinki kl. 14:20. Brottför frá Helsinki 16:10 og komið til Keflavíkur kl. 17:00.
Innifalið í ferðinni:
Ekki innifalið í ferðinni:
Hagnýtar upplýsingar
Vegabréfsáritun þarf þegar ferðast er til Kína en kínverska sendiráðið í Reykjavík sér um útgáfu hennar – sjá vefsíðu sendiráðsins. Ljósmynd þarf að fylgja hverri umsókn í ákveðinni stærð – sjá hér.
Farþegar fylla út umsókn á netinu sem endar með að viðkomandi þarf að bóka tíma hjá sendiráðinu til að ganga frá pappírum og koma með ljósmynd. Þar sem sendiráðið þarf fingraför farþega verða allir að koma í þangað. Hins vegar er hægt að fá fjölskyldu/vini til að sækja gögnin þegar þau eru tilbúin.
Flogið með Finnair með skiptingu í Helsinki í báðar áttir.
Tímamismunur á Íslandi og Finnlandi er +3 klst og á Íslandi og Kína +8 klst.
Vegna bólusetninga hvetjum við farþega til að hafa samband við heimilislækni eða þá lækna sem sjá um bólusetningar vegna ferða erlendis á heilsugæslustöðvum. Athugið að gera þetta tímanlega!
Gjaldmiðill Kína er renminbi (RMB) – í daglegu tali nefndur Kuai. 1 Kuai (Yuan) er um 18 krónur íslenskar. Hann fæst ekki í íslenskum bönkum en ekkert mál er að taka hann út erlendis í hraðbönkum en flestir taka þeir bæði debitkort og kreditkort.
Apríl er einn besti mánuðurinn til að heimsækja Kína. Vorið er komið og veðurfar mjög gott. Í Beijing, Xian og Shanghai er hitinn almennt frá 8° og upp í 21° og í Guilin og Yangshuo frá 16° og upp í 23°. Það er oft ansi rakt loft og þá getur að sjálfsögðu rignt í Kína eins og annars staðar. Gott er að hafa þægileg föt og góða skó, regnhlíf, sólgleraugu og sólarvörn og léttan bakpoka til að geyma í vatnsflöskur og annað.
Verðlag í Kína er misjafnt eftir borgum en lægra en við eigum að venjast á Íslandi og oft miklu lægra. Meðalverð á dæmigerðri kínverskri máltíð er 40-50 kuai eða um 900 ísl.krónur, en verð geta verið mun hærri á dýrum veitingastöðum og fínum hótelum. Vatnsflaska kostar um 1 kuai en kaffið getur verið dýrt. Leigubílar eru ódýrir og um að gera að benda bílstjóranum á að nota mælinn!
Aðgangur að internetinu er almennt mjög góður og er mjög víða hægt að komast í ókeypis þráðlaust net. Við mælum hins vegar með því að slökkva á gagnamagninu í símanum þar sem mjög dýrt er að nota íslenskt gagnamagn. Einnig er dýrt að hringja og senda textaskilaboð, en við hvetjum alla til að kynna sér verðskrá síns símafyrirtækis vel.
Í Kína er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Hótel í Kína eru almennt með eins innstungur eins og við þekkjum á Íslandi en það er ekki verra að hafa með sér ferðakló til öryggis.
Kranavatn er ekki öruggt til drykkjar í Kína. Farþegar eru því hvattir til að kaupa drykkjarvatn í flöskum. Það er þó betra að hafa það ekki ískallt ef mikill hiti er magans vegna. En skyldi eitthvað koma upp á og maginn fara í ólag er gott að hafa með sér að heiman töflur eins og t.d. immodium sem fæst í apótekum án lyfseðils.