3-DAGA VETRARPAKKI Á AKUREYRI

From 25.800 kr.

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri og Eyjarfjörður sínu fegursta skrúði með miklum rómantískum blæ.

Tour ID: ISLN14 Destination:
Description

3-DAGA VETRARPAKKI Á AKUREYRI, möguleiki á bæta við aukanótt:

TOUR ID: ISLN 14

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri.


Áhugaverðir staðir

  • Akureyri
  • Kjarnaskógur
  • Hlíðarfjall
  • Eyjafjördur

Ferðalýsing

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri.

Á veturna skartar Akureyri og Eyjarfjörður oft sínu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa því þegar nægur snjór er kominn niðri í dölum þá bætist við þessi frábæri valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.

Þegar skíðavertíðin er byrjuð er oft ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkendur, auk góðra gönguskíðabrauta. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.

Ef fólk við breyta til frá Hlíðarfjalli að þá er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.

Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:

Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.

Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.

Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, en í aðventunni er hægt að heimsækja jólasveinana í Dimmuborgum, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.

Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt. Meðfram ströndinni í Eyjarfirði er hægt að renna við á áhugaverðum eða sögufrægum stöðum, þar á meðal má nefna: miðaldakaupstað Gáseyri; Möðruvellir í Hörgádal – kirkjustað og fæðingastað Jóns Sveinssonar – Nonna;  gömlu síldarverksmiðju á Hjalteyri;  Kaldi bjórsmiðjan og Björböðin á Árskógssandi, en þaðan er hægt taka ferjuna til Hríseyjar; Dalvík með skíðabrekkurnar og safnahúsið Hvoll.

Leiðin til Siglufjarðar liggur síðan í gegnum Múlagöng til Ólafsfjarðar og þaðan áfram í gegnum Héðinsfjarðargöng. Meðal þess áhugaverða í Siglufirði má nefna margverðlaunaða Síldarminjasafn,  þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og sjálfsagt súkkúlaðismiðjuna Fríðu , þar sem hægt er að fá sér kaffi eða súkkúlaðidrýkk og velja sér heimagerða konfektmola.

Nánari ferðalýsing verður send þegar ferð hefur verið staðfest og bókuð.

Dagsetningar og verð:

Grunnpakki (3 dagar/2 nætur).
Ferðatímabíl: – Desember – apríl 

Verð á mann

í tveggja manna herbergi, með morgunverði

25.800

Aukanótt í tveggja manna herb.

8.900

Viðbót fyrir eins manns herbergi /2 nætur

37.000

Aukanótt í eins manns herbergi

14.500

Í sumarhúsi /íbúð með heitum potti m/v.2 gesti *

27.200

Innifalið:

– Hótelgisting með morgunverði, “standard” herbergi með baði í 2 nætur
– 1x kvöldverður
* ath.: íbúða-/sumarhúsagisting er án morguverðar

Book This Tour

Tour Enquiry

Tour Enquiry