5-DAGA VETRARPAKKI AKUREYRI & MÝVATN
TOUR ID: ISLN 30
Dagsetningar og verð:
Grunnpakki (5 dagar/4 nætur). Ferðatímabíl: – Desember – apríl |
Verð á mann |
|
í tveggja manna herbergi, með morgunverði |
47.500 |
|
Viðbót fyrir eins manns herbergi /4 nætur |
25.500 |
|
Í sumarhúsi /íbúð með heitum potti m/v.2 gesti * |
47.200 |
|
Í sumarhúsi /íbúð með heitum potti m/v.4 gesti * |
41.200 |
Innifalið:
– Gisting í “standard” tveggja manna herbergi með baði eða íbúð/sumarhús með heitum potti í 4 nætur;
– Aðgangur í Jarðböðin /Mývatn
– Aðgangur í Sjóböðin /Húsavík
* ath.: íbúða-/sumarhúsagisting er án morguverðar!
Áhugsverðir staðir
- Akureyri
- Mývatn
- Húsavík
Ferðalýsing
Við bjóðum upp fimm daga ferð á Norðurlandi. Í þessum pakka er gert ráð fyrir gistingu í 2 nætur á hóteli eða íbúð/sumarhúsi á Akureyri og 2 nætur á hóteli eða sumarhúsi í Mývatnssveit, Húsavík eða nágrenni. Hægt er að byrja eða enda með dvölina á Akureyri.
Mývatnssveit er með þeim fegurstu náttúruperlum Norðurlands. Svæðið í kringum Mývatn bíður upp á möguleika fyrir gönguferðir og óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum. Hægt að heimsækja Dimmuborgir, en vetrarríki Mývatnssveitar er verður sérstaklega fallegt þegar allt er þakið snjó og vatnið ísilagt. Þá er gott að njóta þess að slappa af í Jarðböðunum eða skreppa í Sjóböðin til Húsavíkur.
Á veturna skartar Akureyri sinnu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.
Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettamenn, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.
Sem annan góðan valkost er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.
Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.