5 daga gönguferðir um Akureyri & nágrenni

98.700 kr.

Skemmtilegar gönguferðir um Akureyri & nágrenni þar sem gist verður í 4 nætur á hóteli á Akureyri. Innifalið er morgunverður og nesti í gönguferðum. Skipulagðar eru gönguferðir með leiðsögn um Akureyri og áhugaverða staði í nágrenni.
Description

5 daga gönguferðir um Akureyri & nágrenni

Brottfarir:

28.7.-01.8.2021;
04.8.-07.8.2021;
11.8.-14.8.2021;
18.8.-21.8.2021;
25.8.-28.8.2021

 

Ferðalýsing:

Gist verður í 4 nætur á hóteli á Akureyri í tveggja manna herbergjum. Innifalinn er morgunverður og nesti í gönguferðum. Skipulagðar eru gönguferðir með leiðsögn um Akureyri og á áhugaverðum stöðum í næsta nágrenni við Akureyri.

 

1.dagur – miðvikudagur:    KOMUDAGUR – AKUREYRI

Komið til Akureyrar og innritun á gististaðinn.

 

2.dagur – fimmtudagur:  GÖNGUFERÐ UM AKUREYRI

Mælum með að byrja daginn í sundlaug Akureyrar eða nýta morguninn í afslöppun.

Um kl 11:00 er lagt af stað í gönguferð um Akureyri með leiðsögumanni. Við göngum í gegnum miðbæ Akureyrar, kíkjum inn í menningarhúsið Hof, skoðum gamla Innbæinn og fræðumst um sögu bæjarins og elstu húsa í bænum. Við lítum inn í Minjasafnið sem ávallt er með áhugaverðar sýningar og heimsækjum Nonnahús – æskuheimili rithöfundar Jóns Sveinssonnar, Nonna; Göngum upp á Brekkuna og skoðum okkur um í Lystigarðinum en þar er að finna þúsundir plöntutengda sem ekki vaxa annarsstaðar í landinu. Gönguferðin endar í síðdegis hressingu (High Tea) á Icelandairhótelinu.

Gönguferðin ásamt stoppi í söfnum tekur ca 3-4 klst.

 

3.dagur – föstudagur:     GÖNGUFERÐ:  SÚLUR

Við byrjum með gönguferð upp á Súlur sem oft eru kallað bæjarfjall Akureyringa. Súlurnar sem eru suðvestan við Akureyri ná 1144 og 1167 m hæð. Súlur eru að mestu gerðar úr ljósu líparíti sem á uppruna í Öxnadalseldstöðinni, sem var virk fyrir 8-9 milljónum ára.

Þátttakendur mæta við bílastæðið í Glerárdal og er þaðan gengið upp á Súlur. Gengið er að mestu eftir stikaðri leið. Frá Ytri Súlu er mikið og gott útsýni til norðurs yfir Akureyri og út Eyjarfjörðinn og til austurs yfir Vaðlaheiði. Ef gengið er nokkuð lengra til suður að Syðri Súlu opnast míkið útsýni yfir fjöllin til suðurs en hæst þeirra er Kerling (1538m).

Gönguferðin tekur 5 klst, upphækkun er ca. 900 m og er heildarvegalengd um 10 km. Leiðin greiðfær, en talsvert brött efst.

 

4.dagur – laugardagur:    GÖNGUFERÐ: HARÐARVARÐA Á HLÍÐARFJALLI

Hlíðarfjall ofan Akureyrar er þekkt sem einn besti og vinsælasti skíðastaður landsins, en fyrir heimamenn ekki síður vinsæll gönguáfangastaður bæði að vetri og sumri.  Gönguferðin bíður upp á einstaklega fagurt sýn yfir Eyjafjörð og fjallahringinn.

Þátttakendur mæti á einkabílum á bílastæðinu við Skíðastaði. Gangan byriar við skíðaskálann. Þaðan er gengið upp að Strýtuskála en gönguleiðin fylgir að nokkru leiti skíðalyftunum, en síðan tekin stefna í norðurátt eftir hryggnum sem kallaður er Mannshryggur. Þaðan er óviðjafnanlegt útsýni yfir Eyjarfjörðinn.  Síðustu nokkur hundruð metrar eru eftir að áfangastaðnum Harðarvörðu sem er merkileg að því leyti að hún um fjórir metrar að hæð með vindahana á toppnum.

Gönguferðin tekur 5 klst, upphækkun er ca. 700 m og er heildarvegalengd um 8 km. Leiðin er greiðfært þó brött á köflum.

 

5.dagur – sunnudagur:    HEIMFERÐARDAGUR

Morgunveðrur á hótelinu og útskráning. Möguleiki á að framlengja dvölina og skoða annað sem Norðurland hefur upp á að bjóða.

 

Verð:

Miðast við lágmark 8 manns Í tveggja manna herbergi Viðbót fyrir eins manns herbergi Tímabil
Verð á mann   98.700 kr.            49.700 kr. 28.7.-01.8.2021

04.8.-07.8.2021

11.8.-14.8.2021

18.8.-21.8.2021

25.8.-28.8.2021

 Innifalið í ferðapakka:

  • Gisting í 4 nætur í tveggja manna herbergi, með morgunverði
  • Leiðsögn í gönguferðunum samkvæmt ferðatilhögun
  • “High Tea” á Icelandair hótel eftir bæjarferð
  • Nestispakki í gönguferðirnar (2x)
  • Aðgangur að Sundlaug Akureyrar (1x)
  • Aðgangur að Minjasafni og Nonnasafni
Tour Inquiry