3-DAGA FERÐ – AKUREYRI, SKÍÐAPAKKI med flug og bíl
TOUR ID: ISLN 21
Dagsetningar og verð:
Ferð ISLN21: Skíðapakki á Akureyri – 3-daga ferð: með flug og bílaleigubíl: 01.12 – 30.4 | Verð á mann miðað við 2 farþega | Aukadagur (bíll + gisting) | Verð á mann miðað við 3 farþega ** | Verð á mann miðað við 4 farþega ** | |
Suzuki Swift eða sambærilegur | 68.200 | 9.700 | 66.500 | ||
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur | 70.200 | 10.500 | 67.800 | 66.600 | |
Toyota RAV4 4×4 eða sambærilegur | 72.800 | 11.500 | 69.500 | 67.900 | |
KIA Sorento eða sambærilegur | 74.800 | 12.400 | 70.900 | 68.900 | |
Viðbót fyrir eins manns herbergi | 9.000 |
** miðað við tveggja manna herbergi |
Innifalið:
-Hótelgisting á Akureyri, með morgunverði í tveggjamanna herbergi með baði í 2 nætur
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 1 dag
– 1x aðgangur í sund
– Bílaleigubíll í 2 sólarhringa, innif. ótakmarkaður akstur, skattur og trygging;
-Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum
Áhugsverðir staðir
- Akureyri
- Kjarnaskógur
- Hlíðarfjall
- Eyjafjördur
Ferðalýsing
Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.
Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkunnar, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.
Sem góður valmöguleiki til skíðaíðkunnar er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.
Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.
Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, heimsækja Dimmuborgir, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.
Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.