5-DAGA SKÍÐAPAKKI AKUREYRI

49.500 kr.

Við bjóðum upp fimm daga (4 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Komdu norður á skíði og njóttu.

Akureyri
Hlidarfjall
Eyjarfjördur
SKU: ISLN22 Category:
Description

5-DAGA FERÐ – AKUREYRI, SKÍÐAPAKKI

TOUR ID: ISLN 22

Dagsetningar og verð:

Ferð ISLN22: Skíðapakki á Akureyri – 5-daga ferð: 01.12 – 30.4

Verð á mann miðað

í tveggja manna herbergi m/morgunverði

49.500

Aukanótt í tveggja manna herb.

7.400

Viðbót fyrir eins manns herbergi /4 nætur

18.000

Í sumarhúsi /íbúð með heitum potti m/v.2 gesti *

53.300

 

Innifalið:

– Gisting í 4 nætur;
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 3 daga
– 3x aðgangur í sund
*ATH. ekkert fæði í sumarhús/íbúð, en nútímalega innréttað eldhús með öll áhöld

Áhugaverðir staðir

  • Akureyri
  • Kjarnaskógur
  • Hlíðarfjall
  • Eyjafjördur

Ferðalýsing

Við bjóðum upp fimm daga (4 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.

Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkunnar, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.

Sem valmöguleiki er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.

Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.

Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum,  heimsækja Dimmuborgir, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.

Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.

Book This Tour

Tour Inquiry