3 daga gönguferð á Borgarfirði Eystri
Frábær 3 daga gönguferð á Borgarfirði eystra með hótelgistingu. Dvalið á Hótel Álfheimum í vel búnum herbergjum með eigin baðherbergi og farið í 6-8 tíma dagsferðir undir leiðsögn heimamanna. Morgunverður og kvöldverður er innifalinn auk nestispakka fyrir gönguferðina. Gengið um fjöll, víðáttur og eyðivíkur þessa frábæra Göngusvæðis Víknaslóða og komið heim á hótel í lok dags. Göngurnar eru fyrir alla þá er unna útivist og hreifingu í góðum félagsskap en auðvelt er að bæta við vegalengd og erfileika á eigin vegum ef menn vilja. Ef þú vilt ferðast langt og njóta náttúru, þæginda og afslöppunar þá er þetta fyrir þig. Göngudagar eru m.a. Stórurð hringferð, Brúnavík hringferð og Breiðuvík hringferð.
Tímabil:
Júní – ágúst
Innifalið:
- Innifalið er 3 nætur hótelgisting í 2ja manna herbergi á hótel Álfheimum.
- Fullt fæði, gönguleiðsögn heimamanna og göngukort.
Hægt að fá gistingu nóttina fyrir ferð á góðu verði ef það eru laus herbergi.
Gott að vita:
- Ferðin hefst að morgni 9:00 á fyrsta degi með hitting og síðan lagt af stað í gönguferð.
- Gengið í 5-8 tíma á dag um 12-22 km á dag. Hækkun frá 400-800 metra á dag.
- Nauðsynlegt að hafa útivistarfatnað fyrir íslenskar aðstæður.
- Erfiðleikastig 2-3 af 5.
Ef þú hefur áhuga á að bóka þessa ferð að þá getur þú sent tölvupóst á netfangið: nonni@nonnitravel.is