3-DAGA FERÐ – AKUREYRI, SKÍÐAPAKKI
TOUR ID: ISLN 20
Dagsetningar og verð:
Grunnpakki (3 dagar/2 nætur). Ferðatímabíl: Desember 2020 – apríl 2021 |
Verð á mann |
|
í tveggja manna herbergi, með morgunverði |
25.900 |
|
Aukanótt í tveggja manna herb. |
7.400 |
|
í eins manns herbergi, með morgunverði |
34.900 |
|
Aukanótt í eins manns herbergi |
16.400 |
|
Í sumarhúsi /íbúð með heitum potti m/v.2 gesti * |
26.800 |
Innifalið:
– Gisting á Akureyri í 2 nætur
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 1 dag
– 1x aðgangur í sund
Áhugaverðir staðir
- Akureyri
- Kjarnaskógur
- Hlíðarfjall
- Eyjafjördur
Ferðalýsing
Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Akureyri skartar sínu fegursta skrúði á veturna.
Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.
Þegar snjórinn er þakinn yfir norðurlandi og skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkunar, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.
Sem annar valmöguleiki við skíðaiðkun í Hlíðarfjalli er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.
Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.
Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, heimsækja Dimmuborgir, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.
Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.