3-DAGA SKÍÐAPAKKI AKUREYRI með flug og bíl

68.200 kr.

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Komdu norður á skíði og njóttu alls þess sem Akureyri og norðurland hefur upp á að bjóða.

Akureyri
Hlidarfjall
Eyjarfjördur
SKU: ISLN21 Category:
Description

3-DAGA FERÐ – AKUREYRI, SKÍÐAPAKKI med flug og bíl

TOUR ID: ISLN 21

Dagsetningar og verð:

Ferð ISLN21:  Skíðapakki á Akureyri – 3-daga ferð:  með flug og bílaleigubíl:  01.12 – 30.4 Verð á mann miðað við 2 farþega Aukadagur (bíll + gisting) Verð á mann miðað við 3 farþega ** Verð á mann miðað við 4 farþega **
Suzuki Swift eða sambærilegur 68.200 9.700 66.500
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur 70.200 10.500 67.800 66.600
Toyota RAV4 4×4 eða sambærilegur 72.800 11.500 69.500 67.900
KIA Sorento eða sambærilegur 74.800 12.400 70.900 68.900
Viðbót fyrir eins manns herbergi 9.000
** miðað við tveggja manna herbergi

Innifalið:

-Hótelgisting á Akureyri, með morgunverði í tveggjamanna herbergi með baði í 2 nætur
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 1 dag

– 1x aðgangur í sund
– Bílaleigubíll í 2 sólarhringa, innif. ótakmarkaður akstur, skattur og trygging;
-Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum

Áhugsverðir staðir

  • Akureyri
  • Kjarnaskógur
  • Hlíðarfjall
  • Eyjafjördur

Ferðalýsing

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.

Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkunnar, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.

Sem góður valmöguleiki til skíðaíðkunnar er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.

Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.

Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, heimsækja Dimmuborgir, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.

Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.

Book This Tour

Tour Inquiry