3-DAGA VETRARDVÖL Á AKUREYRI med flug & bíl

From 69.100 kr.

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Komdu norður og njóttu vetrarparadísarinnar.

Akureyri
Hlidarfjall
Eyjarfjördur
Tour ID: ISLN15 Destination:
Description

3-DAGA VETRARDVÖL Á AKUREYRI með flug & bílaleigubíl:

TOUR ID: ISLN 15

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri.  Hægt að bæta við auka nótt. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði, Taktu flugið norður á Akureyri og hægt að fara á gönguskíði, fjallaskíð eða svigskíði í Hlíðarfjalli. Einnig hægt að slaka á í fallegri vetrarparadís fyrir norðan.


Áhugaverðir staðir

  • Akureyri
  • Kjarnaskógur
  • Hlíðarfjall
  • Eyjafjördur

Ferðalýsing

Við bjóðum upp þriggja daga (2 nætur) dvöl á Akureyri. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.

Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svígskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkun, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðaiðkun. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.

Sem góður valmöguleiki til skíðaíðkunnar er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.

Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.

Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, en í aðventunni er hægt að heimsækja jólasveinana í Dimmuborgum, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.

Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.

Hægt er að bæta við aukanætur í gistingu með aukadaga í bílaleigu.

Dagsetningar og verð:

Ferð ISLN15:  3-ja daga Vetrardvöl á Akureyri:  með flug og bílaleigubíl:  01.12 – 30.4 (hótel) Verð á mann miðað við 2 farþega Aukadagur (bíll + gisting) Verð á mann miðað við 3 farþega ** Verð á mann miðað við 4 farþega **
Suzuki Swift eða sambærilegur 69.100 11.100 67.400
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur 71.100 12.000 68.700 67.500
Dacia Duster 4×4 eða sambærilegur 73.600 13.100 70.400 68.700
KIA Sportage /Toyota RAV4 eða sambærilegur 75.700 13.800 71.700 69.800
Viðbót fyrir eins manns herbergi 11.200
** miðað við þriggja manna herbergi

Innifalið:

– Hótelgisting með morgunverði í tveggja manna herbergi með baði/í 2 nætur;

– 1x 2ja rétta kvöldverður

– Bílaleigubíll í 2 sólarhringa, innif. ótakmarkaður akstur, skattur og trygging;
– Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum

 

Ferð ISLN15:  3-ja daga vetrardvöl á Akureyri:  með flug og bílaleigubíl:  01.12 – 30.4 (sumarhús) Verð á mann miðað við 2 farþega Aukadagur (bíll + gisting) Verð á mann miðað við 3 farþega ** Verð á mann miðað við 4 farþega **
Suzuki Swift eða sambærilegur 70.500 10.500 68.700
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur 72.500 11.400 70.000 69.100
Dacia Duster 4×4 eða sambærilegur 75.000 12.500 71.700 40.700
KIA Sportage /Toyota RAV4 eða sambærilegur 77.000 13.400 73.100 71.500
Viðbót fyrir eins manns herbergi 11.700
** miðað við þriggja manna herbergi

Innifalið:

– íbúða-/sumarhúsagisting 2 nætur á Akureyri

– 1x 2ja rétta kvöldverður

– Bílaleigubíll í 2 sólarhringa, innif. ótakmarkaður akstur, skattur og trygging;
– Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum

* ath.: íbúða-/sumarhúsagisting er án morguverðar!

Book This Tour

Tour Inquiry