5-DAGA FERÐ – AKUREYRI, SKÍÐAPAKKI með flug og bíl
TOUR ID: ISLN 23
Dagsetningar og verð:
Ferð ISLN23: Skíðapakki á Akureyri – 5-daga ferð: með flug og bílaleigubíl: 01.12 – 30.4 (Hótel) | Verð á mann miðað við 2 farþega | Aukadagur (bíll + gisting) | Verð á mann miðað við 3 farþega ** | Verð á mann miðað við 4 farþega ** | Verð á mann miðað við 4 farþega í sumarhúsi** | |
Suzuki Swift eða sambærilegur | 97.600 | 9.900 | 94.300 | |||
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur | 101.400 | 10.900 | 96.800 | 94.500 | 98.900 | |
Toyota RAV4 4×4 eða sambærilegur | 106.200 | 12.000 | 100.000 | 96.900 | 101.300 | |
KIA Sorento eða sambærilegur | 110.000 | 13.000 | 102.600 | 98.800 | 103.200 | |
Viðbót fyrir eins manns herbergi | 18.000 |
** miðað við tveggja manna herbergi |
Innifalið:
– Hótelgisting á Akureyri, með morgunverði í tveggjamanna herbergi með baði í 4 nætur;
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 3 daga
– 3x aðgangur í sund
-bílaleigubíll í 4 sólarhringa með ótakmörkuðu akstri, skatti og tryggingu
-Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum
Ferð ISLN23: Skíðapakki á Akureyri – 5-daga ferð: með flug og bílaleigubíl: 01.12.2020 – 30.4.2021 (Sumarhús) | Verð á mann miðað við 2 farþega | Aukadagur (bíll + gisting) | Verð á mann miðað við 3 farþega ** | Verð á mann miðað við 4 farþega | |
Suzuki Swift eða sambærilegur | 101.300 | 10.800 | 98.000 | ||
Skoda Octavia stw. eða sambærilegur | 105.200 | 11.700 | 100.600 | 98.900 | |
Toyota RAV4 4×4 eða sambærilegur | 109.900 | 13.000 | 103.700 | 101.300 | |
KIA Sorento eða sambærilegur | 113.800 | 13.900 | 106.300 | 103.200 | |
Viðbót fyrir eins manns herbergi | 36.200 |
** miðað við tveggja manna herbergi |
Innifalið:
– Íbúða-/sumarhúsagisting á Akureyri, m/v.2, með heitum potti í 4 nætur;
– Skíðapassi í Hlíðarfjall í 3 daga
– 3x aðgangur í sund
-bílaleigubíll í 4 sólarhringa með ótakmörkuðu akstri, skatti og tryggingu
-Flug Reykjavik-Akureyri-Reykjavík ásamt flugvallarsköttum
Áhugsverðir staðir
- Akureyri
- Kjarnaskógur
- Hlíðarfjall
- Eyjafjördur
Ferðalýsing
Við bjóðum upp fimm daga (4 nátta) dvöl á Akureyri. Á veturna skartar Akureyri sínu fegursta skrúði. Við bæjarmörk Akureyrar eru margir góðir staðir til útivistar. Einn þeirra er Kjarnaskógur með fjölda göngustíga sem einnig breytast að hluta til í gönguskíðabrautir þegar aðstæður leyfa.
Þegar skíðavertíðin er byrjuð er ákjósanlegt að gista á Akureyri eða næsta nágrenni. Stutt er upp í Hlíðarfjall, en þar er að finna bestu skíðabrekkur fyrir svigskíða, fjallaskíða- og snjóbrettaiðkunna, auk góðra göngubrauta fyrir gönguskíðafólk. Útsýnið yfir Akureyri, Eyjafjörð og fjöllin í kring er óviðjafnanlegt frá Hlíðarfjalli.
Þegar nægur snjór er kominn líka niðri í dölum þá bætist við annar valkostur fyrir gönguskíðafólk í Kjarnaskógi. Þar er að finna gott skjól á skíðabrautum í gegnum skóginn.
Sem valmöguleiki að þá er stutt að keyra til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar eða jafnvel til Skagafjarðar upp í Tindastóll og prufa brekkurnar á skíðasvæðum þar.
Fyrir utan vetraríþróttir bjóða Akureyri og nágrennasveitir upp á margvislegt áhugavert:
Í Hrafnagili er Jólagarðurinn þar sem jólastemmingin ríkar allan ársins hring. Börnin vilja kannski kíkja í ævintýraheiminn í turninum og í garðinn við jólahúsið.
Að keyra Eyjafjarðarhringinn í gegnum fagra sveit báðum megin Eyjafjarðarár getur orðið skemmtileg dagleið.
Aðrar náttúruperlur eru aðgengilegar frá Akureyri, og má þar nefna Mývatnssveit sem biður upp á gönguferðir, óviðjafnanlega náttúrusýn í öllum árstíðum, hægt að heimsækja Dimmuborgir, fara í Jarðböðin og njóta útiveru.
Vestari strönd Eyjafjarðar er ekki síður spennandi og biður upp á margt áhugavert og skemmtilegt: gömlu síldarverksmiðjur í Hjalteyri; Árskógssandur með Kalda og Bjórböðum; hægt er að sigla til Hríseyjar; í gegnum göngin þrjú er ekið til Siglufjarðar, þar sem meðal þess áhugaverða má nefna Sildarminjasafnið, þjóðlagasafnið, bjórsmiðjuna Segull67 og súkkúlaðismiðjuna Fríðu.