Gönguferð um Mývatnssveit með heimamönnum

139.900 kr.

Frábær 5 daga gönguferð með leiðsögn heimamanna um Mývatnssveit. Mývatn er rómað fyrir mikla náttúrufegurð og í þessari ferð er boðið upp á það besta sem Mývatn hefur upp á að bjóða.

SKU: ISLN51 Category: Tags: ,
Description

5 daga gönguferðir um Mývatnssveit með heimamönnum

Brottfarir:

  • 07.07.2021
  • 14.07.2021
  • 28.07.2021
  • 04.08.2021

 

Ferðalýsing: 

Gist verður í 4 nætur á hóteli við Mývatn í tveggja manna herbergjum. Innifalinn er morgunverður og nesti í gönguferð.

 

  • 1.dagur – miðvikudagur:    KOMUDAGUR – MÝVATN

Komudagur til Mývatnssveitar og innritun á gististaðinn.

 

  • 2.dagur – fimmtudagur:  GÖNGUFERÐ: SKÚTUSTAÐIR, GRÆNAVATN, LITLASTRÖND

Gönguferð dagsins er við suðurenda Mývatns. Gengið verður frá Sel-hótel Mývatni þar sem þátttakendur mæta. Þaðan er gengið eftir gamla þjóðveginum meðfram vatninu og í átt að Grænavatni þar sem stoppað verður og fræðst um sögu staðarins og húsana þar á bæ.  Frá Grænavatni verða gengnar gamlar engjagötur yfir Framengjar sem öldum saman voru undirstaða heyfengs á fjölda bæja í sveitinni. Haldið áfram að Kráká og bæjarins Litlaströnd og snúið síðan í norðurátt að Hótel Laxá þar sem gert verður stutt stopp til hvildar og möguleiki á hressingu áður en haldið er áfram og hringnum lokað á Skútustöðum.

Gönguferðin tekur 7-8 klst og er heildarvegalengð um 17 km.

Öll þessi ganga er á gömlum vegum og fjárgötum. Engar brekkur eða torfærur sem orð er á gerandi.

Erfiðleiki: 2 skór

 

  • 3.dagur – föstudagur:     GÖNGUFERÐ: SELJAHJALLAGIL, VILLINGAFJALL, DIMMUBORGIR, BIRTINGATJÖRN

 Þátttakendur mæta við Birtingatjörn. Þaðan verður farið í fjallabíl sem ekur með hópinn upp hjá Hverfjalli, upp í Lúdentsborgir og loks upp á fjallgarðinn norðan við Seljahjallagil. Stoppað verður á nokkrum stöðum og fræðst um jarðfræði þessa einstaka svæðis og fleira.

Undir hádegið verður komið upp á fjallgarðinn þaðan sem útsýni yfir Mývatnssveit er magnað. Eftir nestisstopp kveðjum við farartækið og höldum af stað gangandi niður í Seljahjallagil og skoðum stuðlabergið í gilbotninum. Haldið áfram að Villingafjalli sem rís um 100 m upp úr Garðsbruna og hægt að ganga upp til að njóta útsýnis. Síðan er gengið beint í áttina að Dimmuborgum um fjölbreyttar hraunmyndanir sem ná hámarki þegar komið er “bakdyramegin” inn í Dimmuborgir.  Í Dimmuborgum má hvíla lúin bein um stund á kaffihúsinu þar áður en lagt er í lokaáfangan – niður að Birtingatjörn, Þegar lokamarkið nálgast opnast falleg sýn yfir austanvert vatnið.

Gönguferðin tekur um 8-9 klst., heildarvegalengd er um 14 km.

Gangan hefst í um 600 m hæð og endar í um 260 m hæð. Gengið er nánast á jafnsléttu alla leiðina, fyrir utan bröttu brekkuna niður gilið í byrjun ferðar og er mestur hluti gönguleiðar utan vega og slóða, sumt í lausum sandi.

 

  • 4.dagur – laugardagur:    KRAFLA, LEIRHNJÚKUR, HLÍÐARFJALL, REYKJAHLIÐ, JARÐBÖÐIN

Þátttakendur hittast við verslunina í Reykjahlíð og aka þaðan til Kröflu (amk. einn bill verður skilinn eftir til þess að nota síðdegis til að sækja aðra bíla upp í Kröflu).

Gönguleiðin byrjar frá bílastæðinu ofan Kröfluvirkjunnar og er þaðan gengið að Leirhnjúk og þar skoðuð ummerki frá Kröflueldum 1975-1984. Síðan gengið út á hraunið sem rann í Mývatnseldum 1723-1729. Leiðin yfir hraunið er svolitið hlykkjótt, en engar torfærur sem orð er á gerandi. Þegar komið er niður að Hlíðarfjalli sést glögglega hvernig Eldáin steyptist niður í sveitina árið 1729. Gengið meðfram ánni um stund og síðar tekin stefna á Reykjahlíð. Bílarnir sóttur upp í Kröflu og dagurinn endar í Jarðböðunum þar sem menn geta slakað á.

Gönguferðin tekur um 6-7 klst., heildarvegalengd er um 13 km.

Þessi ganga fylgir merktri gönguleið og er lengst af á jafnsléttu og lítið eitt niður í móti.  Möguleiku á að bæta við göngu upp á Hlíðarfjall fyrir þá sem vilja.

 

  • 5.dagur – sunnudagur:    HEIMFERÐARDAGUR

Morgunverður á hótelinu og útskráning.

Möguleiki á að framlengja dvölina og skoða annað sem Mývatnssveit og Norðurland hefur upp á að bjóða.

 

Verð:

Miðast við lágmark 8 manns Tímabil:

Júlí/ Ágúst

Í tveggja manna herbergi Viðbót fyrir eins manns herbergi
Verð á mann:              139.900 ISK 47.000 ISK

 

Innifalið í verði:

  • Gisting í 4 nætur í tveggja manna herbergi með morgunverði
  • Nestispakki í gönguferðirnar (3x)
  • Gönguleiðsögn heimamanna í gönguferðum
  • Akstur með fjallabíl upp á Seljahjallagil
  • Aðgangur að Jarðböðunum (1x)

Ekki innifalið í verði:

  • Annar akstur en tekið fram í innifalið
  • Kvöldverðir, önnur þjónusta ekki tekin fram undir innifalið.

Dagsetningar:

  • 07.7. – 11.7.2021
  • 14.7. – 18.72021
  • 28.7.- 01.8.2021
  •  04.8. – 08.8.2021

Book This Tour

Gönguferð um Mývatnssveit með heimamönnum

Tour Inquiry